Leiðbeiningar við verslun:
- Veljið vöru(r) sem þið ætlið að kaupa, flestar vörur eru í boði í fleiri en einum lit, í þeim tilfellum þarf að velja þann lit sem ætlunin er að kaupa – síðan þarf að smella á hnappinn „Setja í körfu“. Hægt er að kaupa annan lit með því að velja nýjan lit og ýta svo aftur á „Setja í körfu“.
- Þegar þið setjið vöru í körfu, opnast lítill gluggi í smá stund, í þessum glugga er hægt að velja um tvennt – að halda áfram að versla með því að ýta á hnappinn „Meira“ eða opna körfuna til að ganga frá með því að ýta á hnappinn „Karfa“. Þetta er eina leiðin sem hægt er að fara til að opna körfuna til að ganga frá! Mig grunar að þetta fari fram hjá flestum, þar sem þessi gluggi staldrar það stutt við á skjánum og menn átta sig ekki á því að þarna eigi að opna körfuna.
- Eftir að þið eruð komnar inn í körfuna er hægt að ganga frá kaupunum, í fyrstu valmyndinni getið þið breytt innihaldi körfunar með því að fjölga eða fækka einingum, þið þurfið þá að gæta þess að endurnýja körfuna eftir að þið hafið breytt einhverju í henni.
- Í annarri valmyndinni veljið þið sendingarmátann – það er í sjálfu sér einfalt, því við bjóðum aðeins upp á einn sendingarmáta. En hér verðið þið þó að gera eina lagfæringu með því að velja „Breyta heimilisfangi“. Því þið eruð flestar skráðar með eitthvað bull heimilisfang og símanúmer sem sett var inn um leið og þið skráðuð ykkur á síðuna. Þessu þurfið þið sumsé að breyta annars vitum við ekkert hvert varan á að fara!!!
- Þið getið í sjálfu sér hlaupið í gegnum næsta glugga og farið yfir í að staðfesta pöntun og ganga frá greiðslu.
- Þegar þið farið í að ganga frá greiðslu farið þið af okkar vefsíðu um stundarkorn yfir á örugga greiðslusíðu hjá Valitor, hún er vottuð í bak og fyrir og uppfyllir alla öryggisstaðla vegna greiðslu á Netinu. Engar kortaupplýsingar frá ykkur geymast á okkar vefsvæði.
- Við viljum einnig benda á að þið getið æft ykkur í að nota verslunarsíðuna, því ekkert gjald er tekið af ykkur fyrr en þið eruð búnar að ganga frá greiðslum hjá Valitor. Þið getið farið úr körfunni og hætt við og geymt innihald hennar þar til að þið eruð tilbúnar að ganga frá greiðslunni seinna.
Að skrá sig inn
Til þess að hægt sé að versla vörur í netverslun NN, þarf að skrá sig inn sem viðskiptavin. Það er gert með því að ýta á Stofna reikningt.
Er hægt að hætta við kaup, eftir að búið er að greiða?
Jú - að sjálfsögðu, vinsamlega hafið sem fyrst samband við okkur (sjá hnappinn samband efst), ef þið náið okkur ekki í síma, má senda skilaboð með skýringum og nauðsynlegum upplýsingum til að við getum haft samband við ykkur. Hafi varan ekki verið komin í póst, greiðist andvirði þeirra viðskipta sem hætt er við til baka inn á greiðslukort sem gefið var upp við kaupin. Hafi varan aftur á móti verið komin af stað í sendingu, verður kaupandi að hafa samband við pósthúsið upp á að láta endursenda vöruna. Þegar varan er komin aftur til okkar, endurgreiðum við hana að frádregnum sendingarkostnaði, í þeim tilfellum þegar keypt er fyrir minna en 10.000 kr. |
|
Seinast uppfært fimmtudaginn, 29. júlí 2010 16:32 |