|
Ég get ekki verslað þó að ég sé búin að stofna reikning! |
|
|
Eftir að þú hefur stofnað reikning með því að smella á Stofna reikning, þá færð þú sendan tölvupóst. Í þessum tölvupósti er stikluleggur (linkur) sem þú þarft að velja til að virkja reikninginn.
Ef þú sérð ekki þennan tölvupóst, kíktu þá í Junk mail eða ruslpóstinn þinn, hann gæti hafa hafnað þar. Ef það er tilfellið, þarft þú að láta tölvupóstforritið þitt vita að hér sé ekki ruslpóstur á ferðinni, í Mail í Mac er þetta gert þannig að þú þarft að hægri smella á skeytið og velja þar Mark -> Not as Junk. Í Hotmail eða Outlook er líklega borði efst í bréfinu sem gefur þér tækifæri á að segja póstforritinu að hér sé ekki ruslpóstur á ferðinni, eftir að þessum aðgerðum er lokið, getur þú smellt á áðurnefndan stiklulegg eða link.
Ef þetta gengur ekki upp, getur þú haft samband við okkur með því að senda okkur skeyti í gegnum Samband hnappinn efst á vefsíðunni. Við getum virkjað reikninginn fyrir þig.
Einnig bendum við á að við höfum útbúið tvö kennslumyndbönd sem sýna hvernig eigi að stofna reikning og hvernig eigi að versla í fyrsta sinn.
- Myndbandið að stofna reikning sést hér
- Myndbandið um það hvernig eigi að versla í fyrsta sinn sést hér.
|
|
Seinast uppfært fimmtudaginn, 29. júlí 2010 16:31 |